Tvær langerma samfellur frá Hust & Claire í stærð 92, fyrir um 2 ára. Önnur er ljós með smágerðu blómamynstri í bleikum, brúnum og grænum tónum. Hin er röndótt í bleikum og brúnum tónum með rykkingu við hálsmál. Báðar með smellum í klofi. Seldar saman.