Glæsilegur ljósbleikur samfestingur frá Miss Selfridge Petites í stærð 40 (UK 12). Samfestingurinn er með skyrtukraga, löngum ermum, smellum að framan og teygju í mitti sem mótar fallegt snið. Brjóstvasar og cargo-vasi á skálm gefa honum töff og sportlegt yfirbragð. Skálmarnar eru með stroffi að neðan. Petite-línan er sérstaklega hönnuð fyrir lágvaxnari konur.