Glæsilegur svartur kjóll frá H&M í stærð 36, með stórum rauðum blómum. Kjóllinn er með rúnnuðu hálsmáli, síðum víðum ermum og fallegum plíseringum á ermum og pilsi. Tekinn saman í mittið og með síðu, léttu pilsi sem fellur fallega. Fullkominn fyrir veislur, jólaboð og önnur hátíðleg tilefni.