Fallegur, síður kjóll frá Soulmate í stærð L. Svartur með stórgerðu blómamynstri í ljósbláum tónum. Kjóllinn er með löngum ermum, rúnnuðu hálsmáli, mittissaum og víðu, fallega felldu pilsi. Kvenlegt og þægilegt snið sem hentar bæði hversdags og við fínni tilefni.