Glæsileg, síð og opin kápa, golla eða peysa frá danska hönnunarmerkinu Henriette Steffensen Copenhagen í stærð M. Einstaklega mjúkt og hlýlegt flísefni með fallegu, abstrakt mynstri í gráum og ljósum tónum. Kápan er með löngum ermum, vösum að framan og þægilegu sniði. Fjölhæf flík sem hentar bæði sem létt kápa og hlý golla. Eins og ný, einstaklega mjúk og vel með farin.